Rjómaostur til matargerðar - MS

890 kr

Vörunúmer: 1100140009 MS

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Rjómaostur frá MS - 400g

Kælivara 0-4°C

Innihaldslýsing

Innihald: Mjólk, áfir, rjómi, salt, bindiefni (gúargúmmí), rotvarnarefni (kalíumsorbat), mjólkursýrugerlar. 

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 949 kJ / 230 kkal
  • Fita 21g
  • - þar af mettuð 13g
  • Kolvetni 3,9g
  • - þar af sykurtegundir 3,9g
  • Prótein 5,5g
  • Salt 0,74g
MS – Mjólkursamsalan

Mjólkursamsalan er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu um 600 kúabænda um land allt. Fyrirtækið er í eigu Auðhumlu (90,1%) og Kaupfélags Skagfirðinga (9,9%). Auðhumla er samvinnufélag u.þ.b. 600 kúabænda og fjölskyldna þeirra víðs vegar um landið. 

Mjólkursamsalan í núverandi mynd varð til við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum sem hófst skipulega um miðjan tíunda áratuginn þegar stjórnvöld ákváðu að lækka þyrfti kostnað við vinnslu á mjólk. Sameinaðist rúmur tugur félaga í mjólkuriðnaði í færri einingar næsta áratuginn.

Mjólkursamsalan í núverandi mynd hefur starfað frá 2007. Elst fyrirtækið í þessu sameinaða félagi, MS, er Mjólkursamlag KEA, sem var stofnað á sérstökum fulltrúafundi Kaupfélagsins 4. Sep 1927, sem telst vera stofndagur MS.