
Tindur er einstakur ostur sem hefur fengið að þroskast í 12 mánuði eða lengur - 330g.
Á þessum tíma nær hann hinu einkennandi bragði og verður bæði stökkur og bragðmikill en ber á sama tíma örlítið sætt eftirbragð.
Geymsluþol eftir opnun: 1-2 vikur í lokuðum umbúðum. Kælivara 0-4°C
Innihaldslýsing
Innihald: Mjólk, undanrenna, salt, ostahleypir, rotvarnarefni (E252)
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1586 kJ/382 kcal
- Fita 30g
- - þar af mettuð 18g
- Kolvetni 0g
- - þar af sykurtegundir 0g
- Prótein 28g
- Salt 1,5g
- Kalk 800mg (100% af næringarviðmiðunargildum)
MS – Mjólkursamsalan
Mjólkursamsalan er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu um 600 kúabænda um land allt. Fyrirtækið er í eigu Auðhumlu (90,1%) og Kaupfélags Skagfirðinga (9,9%). Auðhumla er samvinnufélag u.þ.b. 600 kúabænda og fjölskyldna þeirra víðs vegar um landið.
Mjólkursamsalan í núverandi mynd varð til við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum sem hófst skipulega um miðjan tíunda áratuginn þegar stjórnvöld ákváðu að lækka þyrfti kostnað við vinnslu á mjólk. Sameinaðist rúmur tugur félaga í mjólkuriðnaði í færri einingar næsta áratuginn.
Mjólkursamsalan í núverandi mynd hefur starfað frá 2007. Elst fyrirtækið í þessu sameinaða félagi, MS, er Mjólkursamlag KEA, sem var stofnað á sérstökum fulltrúafundi Kaupfélagsins 4. Sep 1927, sem telst vera stofndagur MS.