
Sýrður rjómi er pottþéttur í sósur og pottrétti, ofnrétti og ídýfur og kaldar sósur - 180g.
Kælivara 0-4°C
Innihaldslýsing
Innihald: Rjómi, sýrður með mjólkursýrugerlum, ostahleypir
Næringarinnihald
Næringargildi í 100g:
- Orka 1407 kJ/342 kcal
- Fita 36g
- - þar af mettuð 21g
- Kolvetni 2,2g
- - þar af sykurtegundir 2,2g
- Prótein 2,2g
- Salt 0,067g
MS – Mjólkursamsalan
Mjólkursamsalan er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í eigu um 600 kúabænda um land allt. Fyrirtækið er í eigu Auðhumlu (90,1%) og Kaupfélags Skagfirðinga (9,9%). Auðhumla er samvinnufélag u.þ.b. 600 kúabænda og fjölskyldna þeirra víðs vegar um landið.
Mjólkursamsalan í núverandi mynd varð til við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum sem hófst skipulega um miðjan tíunda áratuginn þegar stjórnvöld ákváðu að lækka þyrfti kostnað við vinnslu á mjólk. Sameinaðist rúmur tugur félaga í mjólkuriðnaði í færri einingar næsta áratuginn.
Mjólkursamsalan í núverandi mynd hefur starfað frá 2007. Elst fyrirtækið í þessu sameinaða félagi, MS, er Mjólkursamlag KEA, sem var stofnað á sérstökum fulltrúafundi Kaupfélagsins 4. Sep 1927, sem telst vera stofndagur MS.