Mysa - Erpsstaðir

390 kr

Vörunúmer: 3710141002 Erpsstaðir

aðeins 2 eftir

á þeim tíma

sem þér hentar

Skyrmysa frá rjómabúinu á Erpsstöðum.

Kælivara 4°C – Geymist í kæli

Innihaldslýsing

Innihald: Skyrmysa 100%

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 78 kJ / 18 kkal
  • Fita 0g
  • Kolvetni 4,2g
  • - þar af sykurtegundir 4,2g
  • Prótein 0,4g
  • Salt 0,1g
Erpsstaðir

Rjómabúið Erpsstaðir hóf starfsemi í byrjun apríl 2009, með framleiðslu á rjómaís. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Árlega leggja þúsundir gesta leið sína til Erpsstaða, en þar er fínasta aðstaða til áningar á leiðinni vestur.

Ísinn sem framleiddur er á Erpsstöðum ber heitið Kjaftæði og þykir hann einstaklega bragðgóður. Í boði eru margar bragðtegundir en notast er við ýmis bragðefni úr íslenskri náttúru, svo sem rabarbara, fíflasíróp og ber. Auk íss eru í boði ostar eins og Útlaginn og hið fræga skyrkonfekt sem er sérhönnuð sælkeravara.

Vorið 2018 var opnuð sýning um skyr og skyrgerð á Erpsstöðum, en vegna ísframleiðslunnar fellur til óhemju magn af undanrennu sem er umbreytt í gamaldags sveitaskyr. „Íslenska skyrið er orðið hluti af Slow food sem eru alþjóðleg samtök sem vilja hvetja til smáframleiðslu og að fólk neyti sem mest vara sem framleiddar eru í nágrenni hvers og eins.

Skyrið frá Erpsstöðum var valið inn sem Presidium fyrir nokkrum árum, en um er að ræða viðurkenningu vegna notkunar á hefðbundnum aðferðum við framleiðslu á matvörum”.

Rjómabúið Erpsstöðum ehf., Erpsstöðum, 371 Búðardalur

Allar frekari upplýsingar um rjómabúið má finna á facebook.

Rjómabúið Erpsstöðum