Sýrt grænmeti - Gulrófusalat m/lauk og kryddum - Móðir jörð
1.660 kr
Vörunúmer: 7010120009 Móðir jörð

Súrkál frá Vallanesi - Gulrófusalat m/lauk og kryddum.
Hentar einkar vel með fiskréttum, s.s. sushi og ööllum grænmetisréttum.Við framleiðslu þessarar vöru beitum við hefðmundinni vinnsluaðferð sem kallar fram mjólkursýrugerla (lactobacillus) í vörunni sem bæta metlinguna. Grænmetið er úr eigin lífrænni ræktun.
Til að auka á styrkleikann má bæta við chilli.
Varan hefur ekki hlotið neina hitameðferð og geymist í kæli við 0-4°C
Súrkál er gott með flestum mat.
Innihaldslýsing
Innihald: Gulrófur, rauðlaukur, sesamfræ, sjávarsalt, sítrónusafi, engifer, hvítlaukur, svört kúmenfræ, turmeric, kórianderfræ.
Móðir jörð
Móðir Jörð ræktar og framleiðir íslensk matvæli úr jurtaríkinu. Fyrirtækið býður lífrænt ræktaðar, hollar og bragðgóðar afurðir sem framleiddar eru í sátt við náttúruna. Móðir Jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er fyrirtæki í lífrænni ræktun og matvæla-framleiðslu. Fyrirtækið leggur stund á korn- og grænmetisræktun og framleiðir tilbúnar hollustu- og sælkeravörur. Móðir Jörð er í eigu hjónanna Eymundar Magnússonar og Eyglóar Bjarkar Ólafsdóttur.