Þorrabakki - Súr - Múlakaffi

3.000 kr

Vörunúmer: 1050209001 Múlakaffi

Vara væntanleg

á þeim tíma

sem þér hentar

Hjónabakki - súrmeti fyrir tvo frá Múlakaffi.

Allt mesta góðgætið á einum stað: hrútspungar, sviðasulta, lundabaggar, lifrapylsa og blóðmör.

Þjóðleg íslensk matarmenning er meistirunum í Múlakaffi í blóð borin, enda hefur Múlakaffi selt þorrramat í yfir hálfa öld. Það er ekki að ósekju sem Múlakaffi hefur verið nefnt Konungur þorrans og af þeim sökum er Gott og blessað stolt að geta boðið upp á þorrabakkana frá Múlakaffi. 

Nú sem fyrr er allur súrmatur lagaður í Múlakaffi þar sem eingöngu er notast við íslenska mjólkurmysu og hefðbundnar íslenskar aðferðir. Þorrameistararnir á Múlakaffi hefja súrvinnslu snemma á haustin, gefa sér góðan tíma og leggja alúð í framleiðsluna.

Verði ykkur að góðu.

Kælivara 0-4°C

Nettóþyngd ca. 700g

Innihald

Innihaldslýsing:  Lambaeistu, lambasvið, lambamör, lamabalifur, lambablóð, lambakjöt, mysa, mjólkursýrugerlar, soð, rúgmjöl, mjólk, haframjöl, edik, matarlím, salt, vatn, gersveppir, ediksýra.

Næringarinnihald

Næringargildi í 100g:

  • Orka 531 kJ / 127 kkal
  • Fita 7,3g
  • - þar af mettuð 3,3g
  • Kolvetni 2,8g
  • - þar af sykurtegundir 0,6g
  • Prótein 12,8g
  • Salt 0,46g
Múlakaffi

Múlakaffi var stofnað árið 1962 og er óhætt að segja að fyrirtækið sé rótgróið fjölskyldufyrirtæki.  Í dag rekur Múlakaffi eina stærstu veisluþjónustu landsins þar sem stöðugt er leitast við að fara ótroðnar slóðir  til þess að koma viðskiptavinum okkar á óvart.  

Veitingastaðurinn Múlakaffi er hjarta fyrirtækisins og er staðsettur í Hallarmúla.  Þar fer öll framleiðslan fram  og starfa þar um 30 manns. 

Fyrirtækjaþjónustan er stór hluti af rekstrinum enda hafa ófá íslensk fyrirtæki verið  í áskrift hjá okkur í áratugi, hvort sem um ræðir nokkra matarskammta á dag eða heildarumsjón með veitingarekstur og starfsmannahald. 

 

www.mulakaffi.is